Karfa 0
PlayStation 2

PlayStation 2

17.000 kr

PlayStation 2 kom á markað árið 2000 og er mest selda leikjatölva allra tíma með yfir 150 milljón eintök seld á heimsvísu. Tölvan tilheyrir sjöttu kynslóð leikjatölva og keppti á sínum tíma við Nintendo GameCube, Sega Dreamcast og Microsoft XBOX um hylli leikjaspilara um allan heim. Tölvan er fær um að spila leiki sem komu út fyrir upphaflegu PlayStation tölvuna. Þessi tiltekna tölva er upphaflega útgáfa tölvunnar sem síðar þurfti að víkja fyrir minni útgáfu PS2 tölvunnar sem gengur undir nafninu PS2 Slimline. Eldri útgáfan hefur nokkra kosti fram yfir Slimline útgáfuna þar sem hún getur tengst hörðu drifi og spilar alla PS2 og PS1 leiki (Slimline spilar 99% leikja en ekki alla). Einnig er straumbreytirinn innbyggður sem skapar minni snúruflækju, þó tölvan sjálf taki um fjórfalt meira pláss en sú minni og yngri.

PlayStation 2 kom á markað árið 2000 og er mest selda leikjatölva allra tíma með yfir 150 milljón eintök seld á heimsvísu. Tölvan tilheyrir sjöttu kynslóð leikjatölva og keppti á sínum tíma við Nintendo GameCube, Sega Dreamcast og Microsoft XBOX um hylli leikjaspilara um allan heim. Tölvan er fær um að spila leiki sem komu út fyrir upphaflegu PlayStation tölvuna.

Þessi tiltekna tölva er upphaflega útgáfa PlayStation 2 leikjatölvunnar með módelnúmerið SCPH-50004. Tölvan er í góðu ásigkomulagi og spilaði alla PS2 leiki sem settir voru í hana án vandræða. Eins og flestar PS2 tölvur á þessum aldri gæti tölvan átt í vandræðum með að spila PS1 leiki. 

Pakkinn inniheldur:

PlayStation 2 leikjatölvu
PlayStation Sjónvarpssnúru
Rafmagnssnúru
PlayStation 2 Fjarstýringu
PlayStation 2 minniskubb

Retró Líf ábyrgist leikjatölvur í 30 daga frá sölu, en vísar að öðru leyti í hefðbundna skilmála Retró Líf. 


Deildu nostalgíunni með vinum þínum


Meira úr þessum vöruflokki